1. |
Glussajól
05:48
|
|||
Vetrarkuldinn kælir brá
kælir varðhund kælir skrá
kælir Kobba sprengjuháls
kveikir jóla glussaþrá
Yfir gröfu grúfir föl
glussakerfið mesta kvöl
kraumar glussa-jóla-jesúbarns
ljúffent gröfujólaöl
Glussajól Glussajól
gluss' um allan heim
setjum gluss' á gröfu vökvadrif
gleðjum glussa-jólasvein
Grípur glussaslöngurnar
er að gröfu kemur snar
blað á bráður sprengjuháls
bregður þrútnar pípurnar
Kolbeins kuta hvasst er blað
hverju skildi nú splundrað?
Kobbi sargar sundur leiðslurnar
streymir glussinn óhindrað
Hjúpar gröfu-glussa krem
græðir útbrot og exem
sleipur Kobbi sprengjuháls
hugsar sæll til Betlehems
Fyrir læri lungu og rif
ljúf þess þrívíddaráhrif
fátt er göfugra en glusserín
á gröfu jóla- vökvadrif
|
||||
2. |
Glussabarn
02:52
|
|||
Okkur er fæddur frelsari
Glussa jóla-jesúbarnið Per
með lítinn glussa geislabaug
hann lýsir upp desember
Hundgá heyr minn glussaher
í glussajötu hér
okkur er fæddur frelsari
glussa-jóla jesú barnið Per
Fyllti jötu frelsarans
iðnaðarglussi trúið mér
okkur er fæddur frelsari
glussa-jóla jesú barnið Per
Per blístrar fallegt lítið lag
úr "Dansar við úlfa"
með glussa skreyttan ventlahaus
og slaufur um ökklana
Foreldrar Pers vildu ekki
sjá þetta glussaskreytta barn
þau földu hann í Mjóddinni
hann var alltof árásargjarn
Glussa kristur frelsari lýsti upp
gjörvalt Neðra Breiðholt
"þú verður fínn gröfumaður"
hrópaði grannkona hans afar stolt.
|
||||
3. |
Glussasnjór
03:08
|
|||
Kátur glussinn úr gröfu flæðir,
gleður jólasvein og fæðir
Fegrar glussi Chicago.
Glussasnjór..
Prýðir jólakökur og kransa,
mjúkar kinnar Tony Danza,
Togga norska og Kristy Jo.
Glussasnjór.
Þekur gasgrill og greniskóg
og gagnaugun á Keikó.
Jóla jafningur frelsarans ,
Glussi Jóseps og Maríu hans
Glussa elgurinn áfram rennur ,
Þekur graflax og glimmerspennur
En það sem yndislegast er þó.
Glussasnjór..
|
||||
4. |
Last Christmas II
03:03
|
|||
5. |
Hátíðarskap
03:37
|
|||
6. |
Heima um jólin
02:51
|
|||
7. |
White Christmas
05:38
|
|||
8. |
||||
9. |
||||
10. |
Last Christmas I
05:31
|
|||
11. |
Glussanótt (bonus)
03:30
|
|||
Það var eitt sinn um aðventu
Ég var á gangi’um vetrarnótt
Heyrði prest þá skríkja dátt
Að öðru leiti allt var hljótt
Ég leit um öx l og sveimér ei
ef ekki Drottinn þar, seisei
ég sá með glussasvuntu
við glussakar, og dífð’í þar
presti´á aðventu
Það var um miðja aðventu
Drottinn með glussasvuntu
Stóð yfir glussabrunni
Glussa heilögum hann jós
við engils-undirleik banjós,
sóknar, glussi gældi við prest
lalalala glussi gældi við prest
Seitlaði glussi álengdar
Seint gat sá glussi talist slor
Úr skjóli handan við gamlan Dodge
Ég fylgdist með föður vor
Drottinn þynnti glussa sinn
Jós yfir sóknarprestinn
Svo húð hans myndi nærast
Um glussabað
Hann Drottinn bað
Það presti var kærast
Það var um miðja aðventu
Drottinn með glussasvuntu
Stóð yfir glussabrunni
Glussa heilögum hann jós
við engils-undirleik banjós,
sóknar, glussi gældi við prest
lalalala glussi gældi við prest
Að lokum prestur í glussann grét
Drottinn í jötu lagði kút
Hann lagð´á bringu hans glussatjakk
Og glussavættan klút
Sá ég lokast glussakar
Og svo birtust bakarar
Með fullt fangið af kleinum
Þá Drottinn hvarf
En fagna varð
Glussanum hreinum
Það var heilög glussanótt
Glussi Drottins flæddi hljótt
Um sóknarprestsins enni
Seig var sú glussa-blessun
Aldrei gleyma því ég mun
hvernig, glussi gældi við prest
lalalala glussi gældi við prest
|
||||
12. |
Glussahátíð (bonus)
02:57
|
|||
Ég hjúpa þig heilögum glussa
Hreinsandi vessa sérhver jól
Þessi hefð er sígild
Áhrif hans blíð og mild
Húð þín glitrar helg sem sanasól
Ég hjúpa þig heilögum glussa
Mjúkar ég herðar þínar þvæ
Höku þína nudda og hlæ
Frelsarans glussa hátíð er í bæ
|
||||
13. |
||||
Glussi, glussi allstaðar
það gleður mínar slagæðar
Jólaljósin glussagljáð
sem glitra jólagreinum á
Glussabrúsa boðskap ber
ég dæli glussa hvar ég fer
og teipa þig við skrifborðsstól
Við höldum glussajól
|
||||
14. |
Glussaskap
03:31
|
|||
Ég flyt inn frá Ítalíu
Há-gæð-a gír-olíu
Margfalt betr-a en hveiti
Ég sólginn er í eldsneyti
Ég glussann finn á ný
Streyma mér innaní
Ég flyt hann inn frá Ítalíu
Í kjallaranum allt er klárt
Glussastampinn þreif
Rafstöðin í horninu
Ég start-enni með sveif
Glussadælan tilbúin
Slanga, trekt og skeið
Ég finn að ég bólgna
Er ég finn minn ástfólgna
Glussa streyma rétta leið
Ég flyt inn frá Ítalíu
Há-gæð-a gír-olíu
Margfalt betr-a en hveiti
Ég sólginn er í eldsneyti
Ég glussann finn á ný
Streyma mér innaní
Ég flyt hann inn frá Ítalíu
Ég hræri glussan rangsælis
Hann ilmar aldeilis
Ég bæti í hann rauðspritti
Mjúk olían er deig
Ég kveiki undir hellunni
og brugga glussa seið
Ég pressa þennan vessa
Með tárum saftið blessa
Svo glussinn rati rétta leið
Ég flyt inn frá Ítalíu
Há-gæð-a gír-olíu
Margfalt betr-a en hveiti
Ég sólginn er í eldsneyti
Ég glussann finn á ný
Streyma mér innaní
Ég flyt hann inn frá Ítalíu
|
Stafrænn Hakon Reykjavík, Iceland
The band´s current line up consists of guitarists Ólafur Josephsson
and Lárus Siguðsson, bass guitarist
Árni Þór Árnason, drummer Róbert
Már Runólfsson and singer Magnús Freyr Gíslason. Eternal Horse is the
first Stafrænn Hákon album featuring the whole band collaborating on
the songs in their studio
... more
Streaming and Download help
Stafrænn Hakon recommends:
If you like Stafrænn Hakon, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp