Glussajól

by Stafrænn Hakon

Glussajól cover art
/
1.
05:47
2.
03:29
3.
02:57
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.

about

Stafrænn Hákon er jólabarn, það er staðreynd. Jólin árið 2010 eru ekki þar undanskilin. Stafrænn Hákon mun taka hátíðarhöldum þetta árið opnum örmum og heiðra unga sem aldna. Það sem meira er, Stafrænn Hákon hefur ákveðið að skvetta glussa yfir dýrð jólanna þetta árið og gefur út plötuna ”Glussajól” því til staðfestingar.

Árið 2010 hefur verið annasamt hjá Stafrænum Hákoni. Upp má telja stuttan evróputúr snemma árs þar sem hjörtu evrópubúa voru kæld með vænri glussa innspýtingu. Fyrsta útgáfan var stuttskífan APRON EP sem seld var á tónleika ferð þeirri. Annars var stórplatan ”Sanitas” og 6 stór skífa Stafræns Hákons gefin út í Apríl af Kimi Records og Darla Records. Sanitas fékk lofsamlega dóma um víðan völl og eru meðlimir Stafræns Hákons afar ánægðir með það. Í kjölfarið skellti Stafrænn í gír og spilaði í sumargleði Kimi Records og fluttu oft Byko lagið sem var sérstaklega samið fyrir þá ferð við mikinn fögnuð viðstaddra. Airwaves hátíðin var tekin með trompi og spilað af hvílíkri áfergju með 8 meðlimi uppá sviði þar sem glussinn streymdi óhindrað.
Það er því ekkert annað en rökrétt framhald hjá Stafrænum Hákoni að láta draum sinn rætast og gefa út sannkallaða jólaplötu þar sem þekkt lög eru sett í svokallaðan glussabúning og þeim smurt í hnausþykka glussahimnu. Skífan inniheldur 4 ný lög með íslenskuðum textum af Svani Magnús einlægan meðlim sveitarinnar Per:Segulsvið. Af 10 laga skífu má svo finna 6 önnur lög sem Stafrænn Hákon hefur dundað sér við að smíða fyrir hin ýmsu jól allt frá árinu 2004. Nú hefur glussakerfið verið fullmótað og allar leiðslur á sínum stað og því óskar Stafrænn Hákon þér gleðilegra glussajóla.

credits

released 12 December 2010
Gleðileg Glussajól!
Jólalagaafurð Stafræns Hákons mun veita þér unaðstilfinningu, ekki ósvipaðri tilfinningu þeirri er smyrsli er borið varlega á ökkla rauðhærðs unglings. Stafrænn Hákon óskar þér gleðilegra glussajóla og mega hann streyma dátt um þrútnar glussaleiðslur yðar!

Daniel Lovegrove AKA Unstatuesque söng í White Christmas og Do they know it´s christmas ásamt því að endurskapa og smíða White Christmas og Merry Christmas Mr.Lawrence.

Ólafur Josephsson spilaði og söng restina af glussanum.

Teikningar og hönnun: Árni Þór Árnason
Svanur Magnús úr Per:Segulsvið: Textagerð á lögunum Glussajól, Glussabarn og Glussasnjór.

Magnús Freyr Gíslason söng Hátíðarskap, White Christmas og Heima um Jólin.

2010 Vogor Recordings

Takk: Dan, Maggi, Árni, Svanur Magnús, Kimi & Brak, Balli Esra & Kristján, Per:Segulsvið

tags

license

all rights reserved

feeds

feeds for this album, this artist

about

Icelanders Stafrænn Hákon move toward Rock described as Power-Ambient, currently only audible to left handed polar bears. A daring but natural step with pop singalong melodies, which may sound unlikely for the ambient post-rock/electronica band.

discography

contact / help

For help with downloads, click here.

For all other inquiries, click here.

Track Name: Glussajól
Vetrarkuldinn kælir brá
kælir varðhund kælir skrá
kælir Kobba sprengjuháls
kveikir jóla glussaþrá
Yfir gröfu grúfir föl
glussakerfið mesta kvöl
kraumar glussa-jóla-jesúbarns
ljúffent gröfujólaöl

Glussajól Glussajól
gluss' um allan heim
setjum gluss' á gröfu vökvadrif
gleðjum glussa-jólasvein

Grípur glussaslöngurnar
er að gröfu kemur snar
blað á bráður sprengjuháls
bregður þrútnar pípurnar
Kolbeins kuta hvasst er blað
hverju skildi nú splundrað?
Kobbi sargar sundur leiðslurnar
streymir glussinn óhindrað

Hjúpar gröfu-glussa krem
græðir útbrot og exem
sleipur Kobbi sprengjuháls
hugsar sæll til Betlehems
Fyrir læri lungu og rif
ljúf þess þrívíddaráhrif
fátt er göfugra en glusserín
á gröfu jóla- vökvadrif
Track Name: Glussabarn
Okkur er fæddur frelsari
Glussa jóla-jesúbarnið Per
með lítinn glussa geislabaug
hann lýsir upp desember

Hundgá heyr minn glussaher
í glussajötu hér
okkur er fæddur frelsari
glussa-jóla jesú barnið Per

Fyllti jötu frelsarans
iðnaðarglussi trúið mér
okkur er fæddur frelsari
glussa-jóla jesú barnið Per

Per blístrar fallegt lítið lag
úr "Dansar við úlfa"
með glussa skreyttan ventlahaus
og slaufur um ökklana

Foreldrar Pers vildu ekki
sjá þetta glussaskreytta barn
þau földu hann í Mjóddinni
hann var alltof árásargjarn

Glussa kristur frelsari lýsti upp
gjörvalt Neðra Breiðholt
"þú verður fínn gröfumaður"
hrópaði grannkona hans afar stolt.
Track Name: Glussasnjór
Kátur glussinn úr gröfu flæðir,
gleður jólasvein og fæðir
Fegrar glussi Chicago.
Glussasnjór..

Prýðir jólakökur og kransa,
mjúkar kinnar Tony Danza,
Togga norska og Kristy Jo.
Glussasnjór.

Þekur gasgrill og greniskóg
og gagnaugun á Keikó.
Jóla jafningur frelsarans ,
Glussi Jóseps og Maríu hans

Glussa elgurinn áfram rennur ,
Þekur graflax og glimmerspennur
En það sem yndislegast er þó.
Glussasnjór..